Vélstjórar

Vélstjórar reka og viðhalda vélbúnaði um borð í skipum og bera ábyrgð á öruggum, skilvirkum og hagkvæmum rekstri búnaðarins. Í starfinu felst að sjá um rekstur, eftirlit, prófanir, viðhald og viðgerðir á vél- og rafbúnaði, stýrikerfum og hjálparbúnaði. Viðfangsefni vélstjóra eru breytileg eftir réttindastig þeirra og stærð og hlutverki skipa. Vélstjóri er löggilt starfsheiti.

Vélstjórar starfa á fiskveiði-, flutninga- og farþegaskipum, í orkuverum, virkjunum og annars staðar þar sem gerðar eru kröfum um víðtæka þekkingu á vél- og tæknibúnaði. Einnig getur verið um að ræða sölustörf hjá fyrirtækjum sem flytja inn eða framleiða vélar og vélbúnað.

Réttindastig vélstjóra eru fjögur:

A – réttindi ná til skipa með allt að 750 kW framdrifsafl

B – réttindi ná til skipa með allt að 1500 kW framdrifsafl

C – réttindi ná til skipa með 750 til 3000 kW framdrifsafl

D – réttindi eru ótakmörkuð