Íslandsmót iðn- og verkgreina 6.- 8.mars

rh object-1530

 

rh object-1514

Íslandsmót iðn- og verkgreina lauk í dag laugardaginn 8. mars. Hægt er að skoða úrslitin á heimasíðu Verkiðnar.

 

Íslandsmót iðn- og verkgreina var haldið í Kórnum í Kópavog. Íslandsmótið er haldið annað hvert ár en sú nýbreytni var í ár að keppnin stóð yfir í þrjá daga. Tilgangur keppninnar er meðal annars að kynna og vekja áhuga grunnskólanemenda á iðn- og verknámi og þeim fjölmörgu tækifærum sem nám í greinunum hefur upp á að bjóða. Keppendur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.

Gestir sem komu, fengu tækifæri til að snerta á og prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Grunnskólanemendur voru boðnir sérstaklega velkomnir.

 

Sjá dagskrá hér

 

Sjá keppnisgreinar sem keppt er í hér.

 

Hægt er að skoða myndir frá mótinu hér.