Úthlutun orlofshúsa lokið

vestmannaeyjar

 

 

Úthlutun orlofshúsa fyrir sumarið 2014 er lokið. Alls bárust 305 umsóknir og fengu 219 úthlutað orlofshúsum eða orlofsávísunum í sumar. Vinsælasti kosturinn var íbúðin í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina en 37 sóttu um.

vestmannaeyjar

Næst vinsælasti kosturinn var Hvítárbrekka í Húsafelli vikuna 18. – 25. júlí en 35 sóttu um þá viku. Þriðji vinsælasti kosturinn var Djáknavegur vikuna 18. – 25. júlí en 32 sóttu um þá viku.

 

Þeir sem sóttu um eiga að hafa fengið tölvupóst um úthlutun eða synjun. Frestur til að greiða er til og með 2. apríl. En fimmtudaginn 3. apríl kl. 13 verður opnað á netinu fyrir það sem er laust, gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær. Til að bóka er einfaldast að skrá sig inn á orlofsvefinn með lykilorði sem er á félagsskírteininu ásamt kennitölu og ganga svo frá greiðslu með kreditkorti.

 

Þeir sem fengu úthlutað geta komast hér inn á til að ganga frá greiðslu á netinu.