Aðalfundur 5. apríl 2014

Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina 2014 verður haldinn í Fundarsal félagsins Borgartúni 30 Reykjavík laugardaginn 5. apríl kl. 11:00. Dagskrá: 1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu. 3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins. 4. Kjöri stjórnar, trúnaðarráðs og samninganefndar, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga og uppstillinganefndar lýst. 5. Kosning endurskoðenda. 6. Tillögur um fulltrúa á þing ASÍ 7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að. 8. Önnur mál. Hádegismatur í boði félagsins. Félagið veitir ferðastyrk til þeirra félagsmanna sem búa í meira en 40 km. fjarlægð frá fundarstað. Stjórnin |