Afhending sveinsbréfa

Föstudaginn 21. mars var var haldið veglegt nýsveinahóf á Hótel Natura þar sem afhent voru sveinsbréf í; bifvélavirkjun 19 bréf, húsasmíði 5 bréf, pípulögnum 4 bréf, vélvirkjun 6 bréf og blikksmíði 1 bréf, alls 35 sveinsbréf. Að afhendingu lokinni þáðu nýsveinar og gestir veitingar en að hófinu stóðu Félag iðn- og tæknigreina og Byggiðn auk viðkomandi meistarafélaga. Iðan-fræðslusetur annaðist undirbúning og framkvæmd þessarar hátíðar. Sveinar í bifvélavirkjun Sveinar í húsasmíði Sveinar í pípulögnun Sveinar í vélvirkjun Sveinn í blikksmíði |