Kynningarfundur um raunfærnimat

Kynningarfundur um raunfærnimat verður haldinn miðvikudaginn 27. ágúst kl. 17:30 hjá Iðunni fræðslusetur að Vatnagörðum 20, Reykjavík. Hefur þú starfað við iðngrein í 3 til 5 ár (mismunandi eftir greinum) án þess að hafa lokið sveinsprófi? Ertu 25 ára eða eldri? Langar þig að ljúka námi í þínu fagi? Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig. Nánari upplýsingar um fundinn. IÐAN-fræðslusetur mun bjóða upp á raunfærnimat í mörgum iðngreinum haustið 2014. Hægt er að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá IÐUNNI fræðslusetri í síma 590 6400. Nánari upplýsingar á heimasíðu Iðunnar.
|