Ferð heldrifélaga 2014

rh object-4407

 

Laugardaginn 13. september verður farið í árlegt ferðalag Félags iðn- og tæknigreina.

Öllum félagsmönnum FIT sem verða 67 ára á árinu og eldri hefur verið sent boðsbréf í ferðina.

Fyrir þá sem eru að fá boð í fyrsta sinn skal upplýst að ferðirnar eru félögum að kostnaðarlausu en allir þeir sem náð hafa 67 ára aldri eða verða 67 ára á árinu fá boð og gildir það einungis fyrir félagsmenn (án maka).

Við leggjum af stað frá Borgartúni 30 kl. 10 stundvíslega undir stjórn farastjóra.

Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og í síðdegiskaffi. Við gerum svo ráð fyrir að vera aftur í Borgartúni um kl. 19.

Nauðsynlegt er að þeir sem ætla með skrái sig í síðasta lagi fimmtudaginn 11. september á skrifstofum félagsins eða í síma 535-6000.

 
rh object-4407
 
Myndir frá ferðinni 2012.
 
rh object-4788