Það virðist vera gullgrafaraástand hjá efstu lögum samfélagsins

vinnustadaeftirlit b

Pistill vikunnar um samningaviðræður

Ekki er hægt að halda því fram að okkur hafi miðað mikið í samningaviðræðunum en við höfum þó reynt að þoka málum í rétta átt. Tíminn hefur verið notaður til að eiga samtöl við atvinnurekendur í einstökum starfsgreinum s.s. í málm- og í byggingageiranum.

vinnustadaeftirlit b

SA hefur lagt fram tilboð til þeirra félaga sem hafa vísað deilunni til sáttasemjara og kynnt það efnislega fyrir okkur án þess að það hafi verið lagt fram formlega. Nú er verið að skoða innihald tilboðsins og hvernig eigi að bregðast við því og að hvaða leyti það uppfyllir okkar kröfur.

Með tilboðinu til félaganna sem hafa vísað til sáttasemjara er ljóst að það eru að verða vatnaskil í þessari deilu. Spurning er hvort tilboðið sé grunnur til að byggja á eða hvort það leiðir til þess að félögin fari í auknum mæli að skapa sér stöðu til að geta þrýst á. Tíminn tikkar á okkur og öllum ætti að vera ljóst að nú þarf eitthvað að fara að gerast.

Það sem hefur verið að trufla samtölin um endurnýjun kjarasamninga eru fréttir af gríðarlegum hækkunum hjá bankastjórum og æðstu embættismönnum ríkisins. Það gap sem stjórnvöld bjuggu til með að fella niður kjaradóm og vera ekki tilbúin með það fyrirkomulag sem á að taka við, hafa þeir sem eru í efstu lögum samfélagsins nýtt til hins ýtrasta.

Stjórnvöld bera þarna mikla ábyrgð og það er þeirra að taka á þessum ósóma og gefa fólki kost á að skila til baka þessum óhóflegu hækkunum eða hverfa af vettvangi.

Næsta vika getur orðið viðburðarrík og ekki ósennilegt að í henni muni skýrast hvert þessi deila muni þróast.

Við erum enn þá að vinna að styttingu vinnuvikunnar og gerum okkur vonir um að okkur takist að ná góðri lendingu í því máli.