Þetta er maðurinn

Helgi Grétar Kristinsson er Austfirðingur, fæddur á Eskifirði á ársafmælisdegi lýðveldisins. Er búinn að mennta sig meira í sínu fagi en margir kollegar hans og hefur fengist við ýmsar hliðar þess. Og er enn að miðla af þekkingu sinni. Þegar hann fæddist og ólst upp á Eskifirði var samfélagið þar byggt af öfum og ömmum, mæðrum og börnum. Feðurnir voru flestir annars staðar obbann af árinu, á vertíð hér og þar á landinu. „Þannig var það með pabba; hann var fjarri heimilinu á vertíðum, kom svo heim og barnaði áður en hann fór á næstu vertíð.“

Helgi Grétar Kristinsson er Austfirðingur, fæddur á Eskifirði á ársafmælisdegi lýðveldisins. Er búinn að mennta sig meira í sínu fagi en margir kollegar hans og hefur fengist við ýmsar hliðar þess. Og er enn að miðla af þekkingu sinni. Þegar hann fæddist og ólst upp á Eskifirði var samfélagið þar byggt af öfum og ömmum, mæðrum og börnum. Feðurnir voru flestir annars staðar obbann af árinu, á vertíð hér og þar á landinu. „Þannig var það með pabba; hann var fjarri heimilinu á vertíðum, kom svo heim og barnaði áður en hann fór á næstu vertíð.“

Það var nóg að gera fyrir krakka á Eskifirði. Leikirnir tengdust sjónum að sjálfsögðu, þannig er það í minningunni. Strákarnir fengu að fara með körlunum út á fjörðinn á trillunum þeirra og veiða; tóku upp net og sýsluðu við það sem tengdist lífinu í svona plássi þar sem allt mannlífið tengdist sjónum.

Og það var samt í þessu mannlífi, þar sem allt snerist um sjóinn, sem Helgi Grétar fékk sín fyrstu kynni af litum og málun. „Í næsta húsi við okkur bjó málari sem hét Auðbjörn Eiríksson. Hann hafði vinnustofu í kjallaranum hjá sér. Ég sótti mikið í að heimsækja hann og einhvern tíma kallaði hann í mig og spurði hvort ég hefði ekki áhuga á að koma í vinnustofuna sína. Ég hélt nú það. „Þá þarftu að gera mér smágreiða; þú þarft að fara niður í beinamjölsverksmiðju – gúanóið – og gella fyrir mig fisk.“

Gella? Ég hafði ekki hugmynd um hvað það var. Þá setti hann þumal og vísifingur sitt hvoru megin við barkann á hálsi sér og sagði: „Þú tekur bara svona og kúttar á.“

Ég komst inn á verkstæðið til hans og hafði voðalega gaman af því. Hann var auðvitað að sýsla þarna með liti, verandi bæði húsamálari og listmálari. Um sumarið vildi hann koma mér í smávinnu og bað mig að mála stakketið í kringum húsið sitt. Það var talsvert verk og ekki gert á einum degi. Þá réði ég Örn bróður minn og skólabróður hans í vinnu til að hjálpa mér við verkið. En þeir voru fljótir að láta sig hverfa þegar þeir komust að því að ég borgaði þeim helmingi minna en ég fékk greitt.“

Þetta voru fyrstu kynni Helga af litum og málun.

Suður með sjó

Líf fjölskyldunnar breyttist þegar faðir hans fékk vinnu á Keflavíkurflugvelli, fasta vinnu. Það var í kringum 1952 og fjölskyldan fluttist suður til Keflavíkur 1956.

–Var eitthvað líkt með þessum tveimur stöðum? Saknaðirðu einhvers að austan?

„Vitaskuld einhvers. Þar var skyldfólkið mestallt. Við vorum sjö systkini og flest þeirra söknuðu vina sinna. En ég var á einhvers konar millialdri og enginn djúpur söknuður hjá mér eftir lífinu fyrir austan. Svo komst ég mjög fljótlega inn í menninguna þarna suðurfrá; náði góðu sambandi við skólafélaganna.

Ég kynntist fljótlega skemmtilegum strák og við urðum miklir vinir. Hann hét Rúnar Júlíusson. Við vorum jafnaldrar og skólafélagar. Hann útvegaði okkur starf í fiskvinnu þegar við vorum 15 ára, hjá frænda sínum sem rak hf. Keflavík, útgerðarfyrirtæki með marga báta. Árið efir fannst okkur einhvern veginn að það væri ekki við okkar hæfi að vinna í fiski. Þá þekkti Rúnar menn sem voru nýútskrifaðir sem málarar og voru búnir að stofna fyrirtækið Kristinn og Birgir. Við fengum vinnu þar. Þetta var alhliða málningarfyrirtæki; þeir máluðu hús og báta og allt sem til féll. Þannig að það má með sanni segja að Rúnar hafi komið mér í málninguna.“

–En Rúnar hefur ekki ílengst í málningunni?

„Nei, hann var ekki nema stuttan tíma, kunni ekki við þetta starf. Hann vildi frekar komast upp á völl og vinna þar. Svo fór hann að spila músikk.“

–Heldurðu að þú hefðir farið að spila músikk með honum ef tækifæri hefði skapast?

Helgi hlær. „Nei, það held ég að hefði aldrei gerst. „Það var alltaf draumur minn að fara í fara í auglýsingateiknun, alveg frá því ég man eftir mér. Það var fastgreipt í mínum huga. Svo ég fer að ræða málið við Birgi, að ég sé að reyna að safna mér fyrir fargjaldi til að fara utan til náms. Þá segir Birgir: „Sko, þú bara kemur á samning hjá okkur og svo áttu bara fullt af peningum.“

Og það varð úr. Þeir Kristinn og Birgir voru dugnaðarstrákar og mikill uppgangur hjá þeim.“

Til Álaborgar

„Ég átti mjög erfitt með að standa í stiga við vinnuna en hafði mikinn áhuga á auglýsingum og skiltum, þannig að ég eiginlega helgaði mig því. Þannig að í raun var ég kominn á samning í skiltamálun.

Svo fara þeir Birgir og Kristinn á meistaraskóla í Álaborg. Birgir skrapp svo heim vegna þess að tengdafaðir hans dó og hann segir við mig: „Nú verður þú klár eftir viku og kemur með mér út. Ég er búinn að útvega þér skóla í auglýsinga- og skiltamálun.“ Svo ég fór til Álaborgar og var þar í tæpt ár í skilta- og auglýsingamálun.

Eftir Álaborgardvölina var ég orðinn fullnuma í auglýsingaog skiltagerð og fór að vinna fyrir Ósvald Knudsen og Daníel Þorkelsson, sem ráku þá fyrirtæki í Brautarholtinu. Þar vorum við fimm til sjö starfsmenn í skiltamálun og þarna var ég þar til ég tók sveinspróf. Á þessum tíma voru húsamálun og skiltamálun sama iðngrein. Á hinum Norðurlöndunum voru þetta hins vegar aðgreindar greinar eins og eðlilegt er. En ég sem sagt tók sveinspróf í skiltamálun.“

Keldnaholt

„Um það bil sem ég tók sveinsprófið slitu þeir Birgir og Kristinn samstarfinu og Kristinn stofnaði eigið fyrirtæki sem ég keypti hlutabréf í. Hann var meistari, en vildi að ég og fjórir aðrir í Keflavík yrðu sveinar. Fyrsta stórverkefnið sem hann fékk var að mála nýbyggingar rannsóknarstofanna á Keldnaholti. Hann bauð í þetta verkefni ásamt níu meisturum af Reykjavíkursvæðinu og fékk það. Þá stóð ég frammi fyrir spurningunni um hvað ég ætlaði að gera. Ég var að vinna hjá einu stærsta fyrirtæki landsins á þessu sviði, þar sem Ósvaldur og Daníel voru bæði með húsamálun og skiltamálun, en átti jafnframt hlutabréf í fyrirtæki Kristins. Niðurstaðan varð sú að ég hætti hjá Ósvaldi og Daníel og fór að vinna að verkefninu í Keldnaholti.

Það urðu mikil málaferli út af þessu verkefni. Við vorum kærðir á þeim forsendum að við mættum ekki vinna utan okkar svæðis. Við vildum meina að hugtakið vinnusvæði gilti gagnvart sveinunum, verkalýðsfélaginu. Við bentum á Keflavíkurflugvöll sem dæmi; allir málarameistarar þar væru úr Reykjavík en sveinarnir af Suðurnesjunum.

Þetta væri sambærilegt þar sem meistararnir hjá okkur væri að sunnan en sveinarnir úr Reykjavík. En þá sögðu mótherjarnir að þetta væri frísvæði. Þetta var mikið blaðamál áþessum tíma. Við – eða Kristinn sem meistari og í forsvari – vorum algerlega á því að virða fullkomlega vinnusvæðið. Þannig myndum við aðeins ráða starfsmenn úr borginni. Við vorum með tvo lærlinga og svo þrjá sveina úr Reykjavík.

Þetta var stórt verkefni og framfleytti okkur lengi. Í kjölfarið fengum við vinnu við að mála símstöðvar víðsvegar um landið, þá var verið að byggja þær.“

–Svo fórstu að kenna, hvernig stóð á því?

Óðinsvé og Málning hf.

„Þannig var að ég kynntist skóla í Óðinsvéum (Odense) í Danmörku. Þar fannst mér vera kominn í algjör draumaskóli fyrir mig. Þeir höfðu sameinað í eina deild teiknikennslu, dekórasjónmálun (skrautmálara?) og forverði. Þessir þættir höfðu verið sameinaðir í eitt, en höfðu áður verið sérdeildir sem útskrifuðu með diplómu. Ég sótti um og fékk skólavist haustið 1967 og var þar til 1970 – og þarna var hver þátturinn öðrum skemmtilegri.

Ég hugsaði alvarlega um að setjast að í Danmörku, en hafði verið í sambandi við Kristján Guðlaugsson hjá meistarafélaginu. Hann vildi endilega að ég kæmi hingað heim og tæki við Málaradeildinni í Iðnskólanum í Reykjavík. Þá var Jón Björnsson nýhættur þar kennslu og Sæmundur Sigurðsson, hinn kennarinn, á síðasta ári. Og þá vantaði mann til að taka við skólanum. Ég hafði mikinn áhuga á því, en þegar ég kom heim var Sæmundur þarna enn og sagðist ætla að vera í eitt ár til viðbótar. Aðeins var pláss fyrir einn kennara í einu. Ég hefði svosem getað komist þar inn, en þá hefði vinnan bara minnkað hjá Sæmundi.

Þá fréttu þeir hjá Málningu hf. að ég væri kominn til landsins með þessa menntun og báðu mig að koma til sín í starf sem litafræðingur. Ég ákvað að taka því boði og lét kennsluna lönd og leið, utan hvað ég kenndi á námskeiðum í Keflavík.

Starfið hjá Málningu var mjög fjölþætt. Ég var bæði með að útbúa litakort og stilla upp litum fyrir viðskiptavini að velja úr. Gera litatillögur. Blokkabyggingar voru mjög að aukast á þessum tíma og ég útbjó tillögur fyrir litaval fyrir þær, innanhúss og utan. Þetta var eiginlega alveg ný þjónusta, mikið að gera og vinnan mjög skemmtileg. Á þessum tíma var plastmálningin einmitt að ryðja sér til rúms.

Þetta er maðurinn!

Einn atburður í þessu starfi mínu hjá Málningu er mér mjög eftirminnilegur. Vorið 1973 hringdi Kolbeinn Pétursson forstjóri fyrirtækisins í mig og bað mig koma niður á skrifstofu til sín. Þegar ég kom þangað voru þar hjá honum tvær konur, Guðrún Jónsdóttir arkitekt og önnur kona með henni, sem ég man því miður ekki hvað hét. Ég var kynntur fyrir þeim og Kolbeinn sagði: „Þetta er maðurinn.“ Obb obb obb, hugsaði ég, hvað hef ég nú gert?

Á þessum tíma var verið að taka Bernhöftstorfuna í gegn. Guðrún var þá formaður Bernhöftssamtakanna og þau Kolbeinn og hin konan höfðu rætt saman og kynntu þarna fyrir mér um hvað málið snerist. Bernhöftstorfan skyldi máluð. Ég átti að velja litina á húsin og segja til um hvaða efni skyldu notuð. Búið væri að kalla til fjölda fólks, unga listmálara, arkitekta og fjölda annarra. Þannig að ég yrði að vera með mitt alveg á hreinu þegar stundin mikla rynni upp.

Verkefnið var mér ekki alveg óþekkt eftir námið í Óðinsvéum. Við gerðum nokkur tillögu að H. C. Andersen-hverfinu þar í bæ og það var til þess tekið hve vel við settum að upp. Þannig að ég var aldeilis til í slaginn.

Viku seinna var ráðist í herferðina; byrjað kl. þrjú að nóttu og við urðum að klára þetta í síðasta lagi klukkan níu um morguninn. Og einmitt á því slagi var síðasta pensilfarið dregið. Þetta var auð vitað bara leiktjaldamálun, en vakti þó almenning til umhugsunar um þessi mál. Margir gjörbreyttu um skoðun á þessum gömlu húsum. Eiginlega má segja að varla megi snerta við gömlum húsum eftir þetta. Þarna voru spennandi hlutir að gerast á spennandi tímum.“

–Er það á þessum tíma eða fyrr sem þú ferð að stússa í gömlum kirkjum, velja liti og mála?

„Já. Þótt ég væri þarna í vinnu við að velja liti og veita ráðleggingar sem byggðu á nýmóðins efnum, þá hafði ég alltaf mikinn áhuga á þessu gamla, fyrri tíð. Ég var til dæmis alltaf með alls konar gamla muni hjá mér á vinnustofunni hjá Málningu, hluti sem ég var að gera upp. Einu sinni var ég þar með gamalt altari úr gamalli kirkju. Þetta voru verkefni sem ég var sjálfur að skapa; ekki mikið um viðgerðir, þær komu seinna þegar ég fór að helga mig þessu. Sæmundur var áfram við kennsluna í fjögur ár og ég var kominn á fremsta hlunn með að fara utan aftur. Það var ekki samkvæmt mínu eðli að hanga svona og bíða. Ég leitaði mér ekki að verkefnum í forvörslu, en tók að mér tilfallandi verkefni á því sviði. Svo ég ætlaði mér að fara úr landi. Þegar það kvisaðist út myndaðist líklega einhver þrýstingur frá sveinafélaginu gagnvart Sæmundi. Geri ég ráð fyrir.“

–Þú hefur þá vænti ég verið búinn að skapa þér einhvern orðstír, úr því að farið var að leita til þín með verkefni?

„Já, ég held að það hljóti að vera. En svo sem sagt byrjaði ég að kenna á fullu haustið 1978. Þá var ég eini kennarinn í deildinni, en réði til mín efnafræðing til að létta mér starfið.“

Íþaka og MR og Jónas frá Hriflu

–Snúum okkur að Íþöku og Menntaskólanum í Reykjavík.

„Já, nú er verið að endurgera Íþöku, bókasafn Menntaskólans í Reykjavík, allt húsið. Ég málaði salinn með límfarva í fyrra og hitteðfyrra. Verkefninu er ekki lokið, þannig að ég verð eitthvað áfram með þetta skemmtilega verkefnið og reyndar er byrjað á skólahúsinu líka.“

–Þú vinnur þetta sumsé með efnum sem notuð voru þegar húsið var byggt?

„Já og það er gaman að sjá nemendur skólans sýna verkefninu mikinn skilning og virðingu. Við svona endurnýjun eru notuð mjög viðkvæm efni sem krefjast ákveðinnar tillitssemi í umgengni. Menntaskólaaldurinn er kannski versti aldurinn, svona 17 til 18 ára, en þau virða það sem verið er að gera og taka tillit til þess.

Þannig var að í kringum 1950 fóru veggir skólans að springa mjög mikið. Þá var Jónas frá Hriflu menntamálamálaráðherra. Þegar borin var undir hann ósk um að lagfæra veggina sagði hann bara: „Það er til efni sem heitir krossviður, við klæðum bara veggina með honum.“ Og það var gert, í öllum menntaskólum landsins, og loftið líka sums staðar.

En þegar verið er að eiga við þetta núna er allt krosssprungið innan við klæðninguna, gamla klæðningin var farin að molna í gegn. Þannig að verkið verður miklu meira en gert var ráð fyrir.

Skólinn er upphaflega byggður í Kristiansand í Noregi, fluttur hingað. Í milliveggjum eru sefstangir og þær sparslaðar með gifsi, sem síðan er slípað til og lagfært. Síðan málað með límfarva.

Þegar ákveðið var að ganga í endurnýjunina fyrir þremur árum var ekki gert ráð fyrir að það yrði eins dýrt og raunin varð. En veggirnir voru svo illa farnir. Yngvi Pétursson þáverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík hafði mikinn áhuga og metnað til að skólinn fengi sitt upprunalega útlit, en auðvitað er þetta svakalegur kostnaður. En það gengur náttúrlega ekki að setja bara krossvið yfir allt.“

–Er líf eftir málningu?

„Já já. Ég er alla vega mjög ánægður með ellina. Tók upp á því að mála myndir í hitteðfyrra. Hafði farið í Myndlista- og handíðaskólann og seinna Myndlistarskólann í Reykjavík, við Freyjugötu. Ég mála mikið og er búinn að halda fjórar einkasýningar. Ég efast ekki um að það sé mikið málað hinum meginn. En það er spurning hvort maður kemst í almennilegt starf þar. Ég vona samt að ég eigi eitthvað inni hjá almættinu eftir að hafa endurnýjað allar þær kirkjur sem ég hef átt við. Gamall vinnufélagi minn var einhverju sinni að gantast með þessi mál og spurði hvort það yrði ekki nóg að banka bara á gullna hliðið og spyrja eftir Helga Grétari.“

–hm