Þriðja námskeiðinu bætt við

Mikil eftirspurn eftir námskeiði um lífeyristöku

Vegna mikillar eftirspurnar hefur þriðja námskeiðinu um lífeyristöku verið bætt við í vikunni. Fyrsta námskeiðið er á morgun, þriðjudag og það annað á miðvikudag. Fullbókað er á bæði námskeiðin. Því hefur þriðja námskeiðinu verið bætt við; fimmtudaginn 10. nóvember. Námskeiðið hefst klukkan 17:00 í fundarsalnum á Stórhöfða 31 en Fagfélögin standa sameiginlega að námskeiðunum.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti lífeyriskerfisins og hvernig það virkar. Rætt verður um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum sem varða lífeyrismál.

Athugið að makar félagsmanna eru velkomnir á námskeiðið, að undangenginni skráningu.

Skráning fer fram hér eða í síma 5400100.

Dagskrá:

1: Lífeyrir frá Tryggingastofnun  (TR) fjárhæðir og tekjutengingar.

  • Hverjar eru lífeyrisgreiðslur frá TR og  hvaða áhrif hafa atvinnutekjur, greiðslur frá lífeyrissjóðum og aðrar tekjur á  lífeyrisgreiðslur TR.
  • Tekjuáætlun TR
  • Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris hjá TR?

2: Lífeyrissjóðir samtryggingardeild

  • Lífeyrisgreiðslur hvað ræður fjárhæð lífeyris?
  • Áfallalífeyrir örorku-, maka- barnalífeyrir
  • Eru lífeyrisgreiðslur verðtryggðar?
  • Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna og sambýlisfólks
  • Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris?
  • Hvar finn ég upplýsingar um lífeyrisréttindin mín?

3: Séreignarsparnaður

  • Hvenær er hægt að innleysa séreignarsparnað og skattlagning?
  • Áhrif séreignarsparnaðar á lífeyrisgreiðslur TR

4: Tilgreind séreign

  • Hvernig virkar tilgreind séreign
  • Hvert er fyrirkomulagið á útgreiðslu tilgreindar séreignar og skattlagning

5: Hvað þýðir tryggingafræðileg staða lífeyrissjóða?

6: Hugmyndir um hækkun á lífeyrisaldri og breytingu á aldurssamsetningu þjóðarinnar.

7: Annar lífeyrir og skattlagningu.