Atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga

Miðstjórnin skorar á sáttasemjara að draga tillöguna til baka

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér ályktun vegna þess útspils ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Miðstjórnin telur að traust á embætti ríkissáttasemjara hafi skaðast því miðlunartillagan hafi verið ótímabær. Miðstjórn segir að færa megi rök fyrir því að sáttasemjari hafi farið út fyrir valdheimildir sínar og skorar á hann að draga tillöguna til baka. Ályktunin í heild er hér að neðan:

Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hefur skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA. Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Framganga embættisins er atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga, gengur gegn áratuga venjum um samskipti aðila vinnumarkaðarins og skorar miðstjórn ASÍ á ríkissáttasemjara að draga hana til baka.

ASÍ telur heimild til að leggja fram miðlunartillögu vera neyðarúrræði sem takmarkist við að raunverulega hafi öll önnur úrræði verið tæmd og neyðarástand skapast. Viðræðum milli Eflingar stéttarfélags og SA hafi vissulega verið slitið en hins vegar standi nú yfir lýðræðisleg atkvæðagreiðsla um hvort boða skuli til verkfalls. Verkfallsboðun hafi því ekki verið samþykkt af félagsmönnum, verkfall ekki verið boðað og ekkert neyðarástand skapast.

ASÍ telur heimild sáttasemjara jafnframt bundna við að átt hafi sér stað náið samráð við aðila um efni hennar og að hún eigi ekki að leggjast fram án þess að hafa a.m.k. þegjandi samþykki beggja aðila. Hvorugt þessara skilyrða sé uppfyllt.

Hilmar Harðarson, formaður FIT, er 3. varaforseti ASÍ og á sæti í miðstjórn sambandsins.