Greiðslum lokið úr námssjóði

Greiðslum er nú lokið úr Námssjóði sveitarfélaganna fyrir síðasta ár. Greitt hefur verið á uppgefna bankareikninga þeirra sem rétt eiga á greiðslu úr sjóðnum.

Samkvæmt kjarasamningi iðnfélaganna við Samband sveitarfélaga ber að greiða þeim starfsmönnum sveitarfélaga sem fylgja kjarasamningnum styrk úr sjóðnum í febrúar ár hvert. Styrkurinn nemur 1,5% af heildarlaunum síðasta árs.