Sumarútleiga 2023

Orlofshús

Mánudaginn 13. febrúar kl. 13 verður opnað fyrir umsóknir félagsmanna FIT um sumarúthlutun orlofshúsa. Hægt verður að sækja um til mánudagsins 27. febrúar.

Föstudaginn 3. mars eiga allir að hafa fengið svar við orlofsumsókn sinni og mánudaginn 13. mars lýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað.

Miðvikudaginn 15. mars kl. 13.00 verða ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir fyrstur kemur – fyrstur fær.