Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG

Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG fara fram daganna 30.-31. mars 2023 á Stracta Hótel á Hellu. Unnið verður í stefnumótun og framtíðarsýn ASÍ-UNG og ungs fólks á vinnumarkaði. Fundurinn er ætlaður öllu ungu fólki á aldrinum 16-35 ára sem áhuga hafa á starfi stéttarfélaga.

Staðfesting á þátttöku sendist á asiung@asi.is fyrir 15. mars næstkomandi.

Hvert stéttarfélag sendir inn skráningu fyrir sína fulltrúa. Engin takmörk eru á fjölda frá hverju félagi.

Gisting: Stracta Hótel býður þátttakendur gistingu með morgunverði á 15.900 kr. Þátttakendur/eða félög sjá um að bóka og greiða fyrir gistingu.

Matur: ASÍ-UNG býður þátttakendum í kvöldverð á fimmtudagskvöldinu. Morgunverður er innifalinn í gistingu.

ASÍ-UNG hvetur öll félög til að taka þátt og senda fulltrúa!,

 

Hér fyrir neðan má sjá dagskrá fundarins.

Fimmtudagur

12:30 – 13:15 Móttaka, kaffi og hópefli

Gestir koma, hópefli byrjar upp úr 12:55

13:15 – 13:30 ASÍ-UNG

Erindi: Formaður ASÍ-UNG.

13:30 – 14:30 Erindi um stefnumótun – hvernig mótum við stefnu og sköpum framtíðarsýn.

14:30 – 15:00 Kaffipása og spjall

15:00 – 16:30 Vinnustofa/umræðuhópar – fyrri umræða –

16:30 – 16:45 Samantekt

19:00 – …        Kvöldverður á Stracta Hótel í boði ASÍ-UNG

Föstudagur

09:30 – 9:50 Erindi: Forseti ASÍ

09:50 – 11:20 Vinnustofa/umræðuhópar – seinni umræða 11:20 – 11:50 Kaffi og niðurstaða kynnt

11:50 – 12:00 Formaður ASÍ-UNG slúttar viðburðinum

 

Allar nánari upplýsingar má fá hjá Ástþóri, formanni ASÍ-UNG, í síma 841-0199.