Munið greiðslufrestinn

Ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi 13. mars

Mikilvægt er að þeir félagsmenn sem fengu úthlutað viku sumarið 2023 í orlofshúsi FIT muni eftir greiðslufrestinum. Ganga þarf frá greiðslu í síðasta lagi mánudaginn 13. mars.

Miðvikudaginn 15. mars kl. 13:00 verða ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir “fyrstur kemur – fyrstur fær.”

Minnum einnig á að viku forgangi á leigu á orlofshúsi FIT 2024 í Orlando, Florída er lokið. Nú geta allir félagsmenn bókað húsið, hvort sem þeir hafa áður leigt í Florída eða ekki.