Hundrað félagsmenn FIT fengu sveinsbréfin afhent

Píparinn Þór Einarsson tekur við viðurkenningu fyrir árangur sinn

Ríflega 100 félagsmenn í FIT fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn á Hilton hótel í gærkvöld en samtals voru útskrifaðir nýsveinar 196. Hafsteinn Grímsson bifvélavirki og Þór Einarsson pípulagningamaður (sjá mynd að ofan) voru verðlaunaðir fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.

Fjöldi nýsveina í FIT, eftir iðngreinum

Hársnyrtiiðn 27
Pípulagnir 21
Bifvélavirkjun 17
Húsasmíði 12
Skrúðgarðyrkja 11
Málaraðin 6
Vélvirkjun 4
Bifreiðasmíði 2
Húsgagnabólstrun 1

 

Rúnar Hreinsson ljósmyndari myndaði athöfnina en glæsilegt myndasafn má sjá hér.

FIT óskar þessum glæsilegu fulltrúum félagsins til hamingju með áfangann og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

Glæsilegur hópur; nýsveinar í hársnyrtiiðn.