Framhaldsþing ASÍ fer fram í vikunni

Framhaldsþing Alþýðusamband Íslands fer fram daganna 27.-28. apríl á Grand Hótel. Um er að ræða framhald á 45. þingi ASÍ sem frestað var 14. október síðastliðinn.

Ný forysta sambandsins verður kjörin á þinginu, en Kristján Þórður Snæbjarnarson, starfandi forseti, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu.

Finnbjörn A. Hermannsson, fyrrverandi formaður Byggiðnar – félags byggingamanna, lýsti í liðinni viku yfir framboði til forseta.