Góð stemmning á baráttudegi verkalýðsins

Hátíðahöld vegna 1. maí fóru fram víða um land í dag. Mikil dagskrá var venju samkvæmt í Reykjavík þar sem fjölmenni tók þátt. Að kröfugöngu lokinni bauð FIT til kaffisamsætis fyrir félagsmenn á Stórhöfða.

Rúnar Hreinsson, ljósmyndari félagsins, tók fjöldan allan af myndum frá hátíðahöldunum og kaffinu. Nokkrar myndanna má sjá hér að neðan en fleiri myndir er að finna í myndasafni FIT.

Félagið þakkar félagsmönnum fyrir ánægjulegar samverustundir og vel heppnaðan baráttudag verkalýðsins.

FIT