Orlofsuppbót greiðist út 1. júní

Réttur til fullrar orlofsuppbótar miðast við að starfsmaður hafi unnið 45 vikur eða meira á tímabilinu 1. maí – 30. apríl, fyrir utan orlof. Um er að ræða fasta krónutölu sem greiðist þann 1. júní ár hvert, miðað við starfshlutfall á orlofsárinu. Hún greiðist öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum, miðað við 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.

  • Orlofsuppbótin 2023 er 56.000 krónur.

Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Skjal til að reikna út orlofsuppbót