Frábær stemmning á afmælishátíð FIT

FIT hélt upp á 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Óhætt er að segja að samkoman hafi verið vel heppnuð. Starfsfólk FIT grillaði pylsur fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra auk þess sem boðið var upp á afmælistertu.

Lúðrasveit verkalýðsins og Jónsi (í Svörtum fötum) skemmti viðstöddum. Leikhópurinn Lotta skemmti yngri gestum auk þess sem Sirkus Íslands mætti á svæðið með djögglara og menn á stultum. Veðrið var með skásta móti og dagurinn vel heppnaður í alla staði.

FIT þakkar félagsmönnum kærlega fyrir samveruna í dag og samfylgdina í gegn um árin 20. Framtíðin í þessu ört stækkandi félagi er björt.

Rúnar Hreinsson, ljósmyndari félagsins var á staðnum í dag og tók margar skemmtilegar myndir. Nokkrar myndir má sjá fyrir neðan en myndasafnið í heild er hér.