Nám­­skeið fyrir sveins­­próf í hársnyrtiiðn

Félag iðn- og tæknigreina býður nemendum í hársnyrtiiðn upp á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf. Námskeiðið er fyrir þá félagsmenn FIT sem eru skráðir í sveinspróf í september og október 2023. Kennari er Gréta Ágústsdóttir.

Skráning fer fram hér.

Athugið að á módeldegi þurfa nemendur að mæta með að lágmarki 3-4 módel til að æfa sig á. Þátttakendur raða sjálfir niður hvenær módelið mætir. Þátttakendur eru minntir á að koma með eigin blásara, bursta, greiður og mótunarefni sem á að nota í prófinu. Einnig er gott að biðja klippi-, lita- og skeggmódel um að kíkja við og fara yfir verklýsingar.

Námskeiðið, sem er í boði FIT og nemendum að kostnaðarlausu, fellur niður ef ekki fæst næg þátttaka.