Orlofshúsið laust á Florida
Orlofshús FIT á Florida var að losna 30. október til 13. nóvember, vegna forfalla. Fyrstur kemur fyrstur fær. Sjá hér.
Um að gera að nýta þetta einstaka tækifæri og skella sér í sólina.
Húsið er á tveimur hæðum með 6 svefnherbergjum sem skiptast þannig: 4 herbergi með hjónarúmum og 2 herbergi með tveimur rúmum. Það eru 4 klósett í húsinu. Svo er stofa, eldhús, borðstofa, gangar og bílskúr (sem er með leiktækjum). Í bakgarðinum er lítil sundlaug.
Húsið stendur í lokuðu hverfi (resort) þar sem er klúbbhús með allskonar aðstöðu s.s. stórri útisundlaug, útileiktækjum og þessháttar og inni er leiktækjasalur og líkamsræktaraðstaða.