Okur eða almannahagur?

Morgunverðarfundur um íslenska banka

ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna þann 3. október kl. 08:30-10:30, í salnum Vox Club á Hilton hóteli. Léttur morgunverður verður í boði frá 08:00. 

Á ráðstefnunni verður fjallað um niðurstöður nýútkominnar skýrslu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra um gjaldtöku og arðsemi íslensku bankanna. Markmiðið með málþinginu er að dýpka umræðuna um niðurstöður skýrslunnar, fjalla um þær í samhengi við samkeppni og neytendamál og ræða næstu skref fram á við. 

Hefur bættur rekstur bankanna skilað sér í betri kjörum til viðskiptavina bankanna? Er staða neytenda á íslenskum fjármálamarkaði jafn sterk hér á landi og í löndunum í kringum okkur? Hvernig má auka gagnsæi og styrkja stöðu viðskiptavina bankanna? Hvað geta stjórnvöld gert til að efla samkeppni og neytendavernd? 

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, mun flytja ávarp við upphaf ráðstefnunnar og síðan taka þátt í pallborðsumræðu.  

Auk hennar flytja erindi:  

  • Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins 
  • Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu 
  • Inga Dröfn Benediktsdóttir, forstöðumaður í viðskiptaháttaeftirliti hjá Fjármálaeftirlitinu  
  • Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna 
  • Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Indó  
  • Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands  

Í pallborði verða: 

Lilja Alfreðsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Haukur Skúlason og Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. 

Guðmundur Gunnarsson stýrir pallborði.  

Beint streymi verður af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn.