Desemberuppbót 2023

Desemberuppbótin á almennum markaði, að meðtöldu orlofi, er 103.000 krónur og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma. Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar. Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Desemberuppbót ólíkra samninga:

Almenn desemberuppbót*: 103.000 kr.

Landsvirkjun: 149.400 kr.

Orkuveita Reykjavíkur: 119.700 kr.

Samband íslenskra sveitarfélaga: 130.900 kr.

Reykjavíkurborg: 115.000 kr.

Kirkjugarðar Reykjavíkur: 109.100 kr.

Strætó: 115.000 kr.

*Almenn desemberuppbót gildir fyrir kjarasamninga við eftirtalda aðila: Samtök atvinnulífsins, Bílgreinasambandið, Félag pípulagningameistara Félag ráðgjafaverkfæðinga, Meistarasamband byggingamanna, Ríkið, Snyrtifræðingar og Samband garðyrkjubænda.