Fréttabréf FIT er komið út

Fréttabréf FIT er komið út. Blaðið er birt hér á vefnum en fer í prentun í dag. Því verður í kjölfarið dreift á vinnustaði og til þeirra félagsmanna sem eftir því hafa óskað. Hægt er að óska eftir því að fá blaðið sent heim með því að senda póst á netfangið fit@fit.is.

Í blaðinu kennir ýmissa grasa. Skemmtileg og fróðleg viðtöl við félagsfólk eru áberandi í blaðinu. Þar er líka sagt fá útskriftum, afmælishátíð félagsins og ýmsum öðrum viðburðum sem fram fóru á árinu. Pistlil formanns er á sínum stað, fréttir af félaginu og viðtöl við fulltrúa félagsins sem tóku þátt í Euroskills. Loks er þar að finna niðurstöður launakönnunar.

Blaðið má lesa hér að neðan.