Fjölmörg námskeið á dagskrá
![](https://fit.is/wp-content/uploads/2023/01/rh_object-1661-scaled.jpg)
Vorönn 2024 er að hefjast með krafti hjá IÐUNNI fræðslusetri. Fjölmörg námskeið á hinum ýmsu sviðum eru á dagskrá en óhætt er að hvetja félagsfólk til að kynna sér framboðið. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin; lengd þeirra, efnistök og uppsetning, er að finna á vef fræðslusetursins. FIT er aðili að IÐUNNI. Félagsfólk fær námskeiðin á niðursettu verði fyrir vikið.