Fjórar útfærslur vinnutímastyttingar

Eins og FIT greindi frá á dögunum verður virkur vinnutími iðn- og tæknifólks í dagvinnu 36 virkar vinnustundir á viku frá og með 1. febrúar 2024.

Samið var um einn samræmdan vinnutíma í kjarasamningum iðn- og tæknifólks í kjarasamningunum 2022. Breytingarnar hafa áhrif á þá sem starfa skv. kjarasamningum SA við FIT og Samiðn.

Hér fyrir neðan eru fjögur  reiknidæmi um útfærslu styttingarinnar. Samiðn tók þetta saman.  

Hér er svo Excel-skjal sem hægt er að sækja og færa inn eigin forsendur.

Athugið að myndirnar opnast í betri upplausn ef smellt er á þær.