Út í bláinn á sunnudaginn

Farið verður „Út í bláinn“ frá Stórhöfða 31 síðasta sunnudag í mánuði klukkan 13:00. Miðað er við að ferðir verði ávallt síðasta sunnudag mánaðarins fram í maí. Ferðirnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu, einungis þarf að koma með góða skapið, ævintýraþrána og síðan er ekið út í bláinn á vit ævintýranna.

Félagsmenn hvattir til að nýta sér ferðirnar ásamt fjölskyldu. Engin þörf á því að bóka, bara að mæta.

Ferðirnar verða farnar; 28. janúar, 25. febrúar, 31. mars, 28. apríl. 

Allar nánari upplýsingar í síma 535 6000.