Opnað fyrir umsóknir um orlofshús

Opnað verður fyrir umsóknir, mánudaginn 12. febrúar, á orlofsbústöðum FIT fyrir sumarið 2024.

Umsóknir fara aðeins fram á orlofsvefnum. Þetta gildir fyrir alla orlofskosti sem sækja þarf um. Ef umsóknin vefst fyrir fólki má senda tölvupóst á fit@fit.is.

Ekki er tekið við umsóknum í síma. Þegar sótt er um rafrænt þarf að innskrá sig með íslykli eða rafrænum skilríkum og velja viðeigandi mánuð og tímabil í því húsi sem leigja á. Félagsmenn eru hvattir til að sækja um sem flesta orlofskosti til að auka möguleika sína.

Mikilvægar dagsetningar

  • Mánudaginn 12. febrúarer opnað fyrir umsóknir á orlofshúsasíðu FIT þar sem hægt er að sækja um sumarúthlutun.
  • Mánudaginn 19. febrúarklukkan 13:00 er lokað fyrir umsóknir um sumarúthlutun.
  • Miðvikudaginn 21. febrúareiga allir að hafa fengið svar við orlofsumsókn sinni.
  • Mánudaginn 4. marslýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað.
  • Þriðjudaginn 5. marsklukkan 13:00 eru ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir fyrstir kemur fyrstir fær.

Leigutímabil er ávallt frá kl. 16:00 á föstudegi til 12:00 næsta föstudags.

Sumarleiga orlofshúsa innanlands hefst föstudaginn 7. júní og lýkur 23. ágúst.