Íbúðin í Hátúni laus á nýjan leik

Eins og félagsfólk FIT þekkir hljóp félagið undir bagga með Grindvíkingum í haust þegar náttúruhamfarirnar á svæðinu hófust. Íbúð félagsins í Hátúni var þá lánuð til Grindvíkinga. Leigan hefur verið í umsjón Almannavarna og Rauða krossins, sem hefur m.a. haft umsjón með húsnæðismálum Grindvíkinga.

Föstudaginn 1. mars klukkan 13:00 verður opnað að nýju fyrir pöntun á íbúðinni í Hátúni á nýjan leik. Leigutímabilið hefst 1. júní en hægt verður að leigja til áramóta.

„Fyrstur kemur fyrstur fær“ gildir um þessa íbúð, eins og áður. Um daglegu er að ræða en íbúðin er hugsuð fyrir stuttar leigur.