ASÍ-UNG efnir til fræðslu- og tengsladaga í apríl
Fræðslu- og tengsladagar ASÍ-UNG verða haldnir 11.-12. apríl í Reykjanesbæ, við Aðalgötu 60. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 28. mars en hvert stéttarfélag sendir inn skráningu fyrir sína fulltrúa. Engin takmörk eru á fjölda frá hverju félagi.
Hótel Marriot býður þátttakendur gistingu með morgunverði á 23.500 kr. Þátttakendur/eða félög sjá um að bóka og greiða fyrir gistingu. ASÍ-UNG býður þátttakendum í hádegis- og kvöldverð þátttakendum að kostnaðarlausu á fimmtudeginum. Morgunverður er innifalinn í gistingu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi sér sjálfir á staðinn.
Dagskrá fræðslu- og tengsladaga
Fimmtudagur – 11. apríl ————–
12:00 – 13:00 Móttaka, hádegismatur og skráning
13:15 – 13:30 Erindi: Formaður ASÍ-UNG
13:30 – 14:30 Fræðsluerindi nr.1
– Umhverfismál og atvinnulýðræði
14:30 – 15:00 Kaffipása
15:00 – 15:30 Erindi: Formaður BSRB
15:30 – 16:30 Fræðsluerindi nr.2
– Jafnréttismál og málefni innflytjenda
16:30 – 17:00 Samantekt
19:00 Kvöldverður í boði ASÍ-UNG
Föstudagur – 12. apríl ——————–
09:30 – 10:00 Erindi: Forseti ASÍ
10:00 – 11:30 Samtal um framtíð vinnumarkaðarins
11:30 – 11:40 Formaður ASÍ-UNG lýkur viðburðinum