Kynningarfundir og atkvæðagreiðsla

Nýr kjarasamningur Samiðnar, fyrir hönd FIT og annarra aðildarfélaga, og Samtaka atvinnulífsins var undirritaður í Karphúsinu, fimmtudaginn 7. mars.

Samhliða undirrituninni kynntu stjórnvöld umfangsmiklar aðgerðir sem styðja eiga við heimili, stuðla að uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, draga úr verðbólgu og lækka vexti. Aðgerðir stjórnvalda til stuðnings markmiði kjarasamninga eru metnar á 80 milljarða króna.

Í stuttu máli kveður nýr kjarasamningur á um 3,25% hækkun frá 1. febrúar síðastliðnum. Næstu þrjú árin munu laun hækka árlega um 3,5%. Lágmarksávinnsla orlofs verður 25 dagar og orlofs- og desemberuppbót hækkar, svo eitthvað sé nefnt.

Samninginn má í heild lesa hér.

FIT stendur í næstu viku fyrir kynningarfundum til að fara yfir efnisatriði samningsins. Þeir verða sem hér segir:

  • Mánudagur 11. mars klukkan 20:00, Krossmóum 4, Reykjanesbæ
  • Þriðjudagur 12. mars klukkan 18:00, Austurvegi 56, Selfossi
  • Miðvikudaginn 13. mars klukkan 17:00, Stórhöfða 31, Reykjavík, (ath. gengið inn Grafarvogsmegin.)
  • Fimmtudagur 14. mars klukkan 17:00, Stillholti 16, Akranesi

Atkvæðagreiðsla vegna samningsins hefst á þriðjudag á mínum síðum kl. 12:00.

Glærukynningu á kjarasamningi má sjá hér.

Hér er kynningin á pólsku

Hér er kynningin á ensku