Kynningarfundur í Vestmannaeyjum

Athygli félagsfólks er vakin á því að ákveðið hefur verið að bæta við kynningarfundi vegna nýgerðra kjarasamninga Samiðnar og SA.
Kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 15. mars klukkan 12:00 á Einsa kalda í Vestmannaeyjum. Boðið verður upp á súpu og brauð. Félag iðn- og tæknigreina.
Í dag, fimmtudag, verður samningurinn kynntur á Akranesi klukkan 17, eins og áður hafði verið boðið.
Meðfylgjandi mynd var tekin á kynningarfundi Samiðnar á Stórhöfða í gær. Fleiri myndir má sjá í myndasafni FIT.