Aðalfundur 23. mars

Aðalfundur Félags iðn- og tæknigreina 2024 verður haldinn laugardaginn 23. mars kl. 11 að Stórhöfða 31, jarðhæð.
Gengið inn Grafarvogsmegin.

Dagskrá:
1. Skýrsla félagsstjórnar um starf félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til umræðu og afgreiðslu.
3. Ákvarðanir teknar um ávöxtun sjóða félagsins.
4. Kjöri stjórnar lýst.
5. Kosning trúnaðarráðs, kjörstjórnar, skoðunarmanna reikninga, og uppstillinganefndar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillögur um fulltrúa á ársfundi lífeyrissjóða sem FIT er aðili að.
8. Breyting á reglum sjúkrasjóðs og breyting á lögum félagsins.
9. Önnur mál

Hádegismatur í boði félagsins.

Ath. Félagið veitir ferðastyrk til þeirra félagsmanna sem búa í meira en 40 km fjarlægð frá fundarstað.

Stjórnin