Myndir frá hátíðarhöldunum

Veðrið lék við þátttakendur í hátíðarhöldum af tilefni baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, sem efnt var til í Reykjavík á miðvikudag. Hátíðarhöld fóru fram víða um land.

Að kröfugöngu og útifundi loknum á Ingólfstorgi bauð FIT félagsfólki til kaffihlaðborðs, ásamt Fagfélögunum, á Stórhöfða 29-31. Þar var kátt á hjalla, eins og myndir bera með sér.

Myndir frá deginum má finna í myndasafni FIT.