Námskeið í september fyrir sveinspróf í hársnyrtiiðn

Félag iðn- og tæknigreina býður nemendum í hársnyrtiiðn upp á undirbúnings- námskeið fyrir sveinspróf. Námskeiðið er fyrir það félagsfólk FIT sem er skráð í sveinspróf.

Kennari er Gréta Ágústsdóttir.

Námskeiðið er í boði FIT og er nemendum að kostnaðarlausu. Það fellur niður ef ekki verður næg þátttaka.
Bóklegt námskeið 5. september kl.  17-22 Stórhöfði 29, gengið inn Grafarvogsmegin.

Sveinspróf

Næsta próf í hársnyrtiiðn verður í sept/okt 2024. Bóklegt próf verður mánudaginn 9.sept. Verklegt próf verður haldið 21. og 22.sept, 28.og 29.sept og 5.-6.okt í Reykjavík, 12.og 13.okt á Akureyri ef næg þátttaka næst.

Umsóknarfrestur er liðinn.

Skráning á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf

Nafn(Required)
Netfang(Required)