Opnað fyrir bókanir 1. nóvember

Opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa á fyrri hluta næsta árs þann 1. nóvember næstkomandi, frá klukkan 13:00. Tímabilið sem þá verður hægt að bóka er frá byrjun janúar til 5. júní 2025.
Athygli er vakin á því að páskavikan er á meðal þeirra vikna sem hægt er að bóka en hún er frá 16 til 23. apríl. Fyrir páskavikuna eru dregnir frá 26 punktar.
Hér gildir reglan; fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar má finna á orlofsvefnum.
Fyrst um sinn getur félagsfólk aðeins bókað eina leigu í orlofshúsi hjá FIT. Þetta er gert til að tryggja að sem flestir eigi kost á að leigja sér orlofshús. Í byrjun desember fjölgar leigum í tvær.
Ekki hika við að hafa samband við félagið ef einhverjar spurningar vakna. Símanúmerið er 535-6000.
Meðfylgjandi mynd er af nýuppgerðu húsi félagsins í Kiðárbotnum í Húsafelli.