Desemberuppbót 2024

Desemberuppbótin á almennum markaði*, að meðtöldu orlofi, er 106.000 krónur  árið 2024 og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

 

*Almenn desemberuppbót gildir fyrir kjarasamninga við eftirtalda aðila: Samtök atvinnulífsins, Bílgreinasambandið, Félag pípulagningameistara Félag ráðgjafaverkfæðinga, Meistarasamband byggingamanna, Ríkið, Snyrtifræðingar og Samband garðyrkjubænda.