Skilafrestur umsókna í desember

Frá sjúkra- og menntasjóði FIT
Skilafrestur umsókna, vottorða og annara gagna er í síðasta lagi 13. desember n.k. til að greiðslur berist fyrir áramót.
Næsta útborgun styrkja og dagpeninga í desember er fyrirhuguð 20. desember.
Eftir ármót verður fyrsta útborgun 10. janúar 2025.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við félagið í síma 535-6000 eða senda tölvupóst á fit@fit.is.