Undirbúningur fyrir sveinspróf – skráning á námskeið
Félag iðn- og tæknigreina býður nemendum í hársnyrtiiðn upp á undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf. Námskeiðið er fyrir þá félagsmenn FIT sem eru skráðir í sveinspróf í febrúar og mars 2025. Kennarar eru Gréta Ágústsdóttir og Andri Guðmundsson.
Dagskráin er sem hér segir:
| Dagsetning | Klukkan | Hvað |
| Mánudagur 27. janúar | 17:00 | Bóklegt undirbúningsnámskeið á Stórhöfða 31 – gengið inn Grafarvogsmegin |
| Mánudagur 3. febrúar | 17:00 | Verklegt námskeið í húsnæði Hárakademíunnar |
| Laugardagur 15. febrúar | 10:00 | Verklegt námskeið í húsnæði Hárakademíunnar |
| Miðvikudagur 19. febrúar | 17:00 | Verklegt námskeið í húsnæði Hárakademíunnar |
| Mánudagur 24. febrúar | 17:00 | Verklegt námskeið í húsnæði Hárakademíunnar |
Athugið að á módeldegi þurfa nemendur að mæta með að lágmarki 3-4 módel til að æfa sig á. Þátttakendur raða sjálfir niður hvenær módelið mætir. Þátttakendur eru minntir á að koma með eigin blásara, bursta, greiður og mótunarefni sem á að nota í prófinu. Einnig er gott að biðja klippi-, lita- og skeggmódel um að kíkja við og fara yfir verklýsingar.
Boðið verður upp á veitingar á námskeiðinu.




