Fríðindin hjá FIT
Hvað gerir FIT?
FIT (Félag iðn- og tæknigreina) er stéttarfélag fyrir starfsfólk í iðn- og tæknigreinum. Með aðild að FIT ert þú hluti af sterku stéttarfélagi sem berst fyrir þinni menntun, þínum launum og öryggi þínu á vinnumarkaði.
Félagsmenn FIT njóta ekki aðeins góðs af því að félagið semur fyrir þá um lágmarkskaup og kjör heldur veitir félagið ýmiss konar stuðning þegar kemur að kjaramálum. FIT hjálpar þér t.d. að skilja launaseðilinn þinn, ef þú þarft á að halda, og veitir þér beina faglega og lögfræðilega aðstoð við að sækja vangreidd laun, ef sú staða kemur upp. Við pössum að ekki sé brotið á þér! Öll þjónusta félagsins er innifalin í félagsaðildinni.
Fríðindin sem fylgja því að vera í FIT:
- Sjúkradagpeningar: FIT grípur þig ef þú veikist eða slasast og getur ekki unnið. FIT greiðir sjúkradagpeninga (laun í veikindum) í allt að þrjá mánuði þegar þú ert búinn með veikindaréttinn hjá atvinnurekanda. Sjá hér.
- Orlofshús: Þú getur leigt yfir 30 frábær sumarhús og orlofsíbúðir um allt land, og jafnvel erlendis, á mun lægra verði en almennt er í boði. Við erum auk þess með glænýjan orlofsvef með frábæru notendaviðmóti fyrir farsíma.
- Styrkir til náms og endurmenntunar: Þú getur fengið styrki til að sækja námskeið og bæta við þig menntun. Skólagjöld, sveinspróf eða meirapróf – við styrkjum þetta allt! Sjá hér.
- Styrkir vegna heilsu: FIT veitir styrki til dæmis vegna líkamsræktar, sjúkraþjálfunar, sálfræðings og annarra heilsutengdra útgjalda. Við borgum þér svo fæðingarstyrk ef þú eignast barn (154 þúsund!) og hjálpum þér að kaupa gleraugu, svo eitthvað sé nefnt. Sjá hér.
- Afslættir hjá fyrirtækjum: Félagsskírteinið gefur þér afslætti hjá fjölmörgum fyrirtækjum um allt land.
- Ferðaávísun: Á orlofsvef FIT geturðu keypt Ferðaávísun sem veitir þér aðgang að geggjuðum tilboðum á gistingu og ferðum um allt land og jafnvel í Evrópu. Þú kaupir inneignarnótu sem félagið niðurgreiðir og færð auk þess aðgang að tilboðum sem eru betri en gengur og gerist.
- Allt fyrir orlofið: Á orlofsvefnum okkar geturðu líka keypt vörur eins og Útilegukortið og Veiðikortið á hlægilegu verði. Allt fyrir sumarfríið!
Það margborgar sig að vera í FIT! Hérna geturðu sótt um inngöngu í félagið.
Hérna fyrir neðan eru myndir af nokkrum orlofshúsum sem við eigum.











