Góður og samheldinn hópur
Fréttabréf FIT: Viðtal við vélvirkjann Daníel Magnússon

„Ég er búinn að vera starfsmaður hér í rétt rúmlega fimm ár en þar á undan var ég verktaki. Ég er þess vegna búinn að vinna hér á svæðinu í fjórtán ár, eða frá því ég var 18 ára,“ segir vélvirkinn og rennismiðurinn Daníel Magnússon, starfsmaður Norðuráls og Grundartanga. Daníel starfar sem liðsstjóri á verkstæði Norðuráls; hefur umsjón með viðhaldi búnaðar og heldur utan um mannskapinn.
Spurður um muninn á því að vera verktaki á svona stað eða fastur starfsmaður svarar Daníel því til að það sé skemmtilegra að tilheyra hópnum – að vera fastur starfsmaður. „Það er samt gaman að vera búinn að prófa bæði,“ segir hann og bætir við að vinnustaðurinn sé frábær. Hjá Norðuráli séu mikil tækifæri.
Smitaðist ungur af vélvirkjanum
Þegar Daníel lauk grunnskóla fór hann að vinna hjá skipasmíðastöðinni Þorgeiri og Ellert á Akranesi. Það var þar sem áhuginn á vélvirkjanum kviknaði. „Ég smitaðist að vélvirkjanum þar og fór svo í rennismiðinn 2016. Ég vildi auka fjölbreytni mína og læra meira í járniðnaði. Ég hef alltaf haft áhuga á að smíða og finna lausnir á hlutunum,“ útskýrir hann.
Daníel hefur búið á Akranesi frá 1999 og telur sig fyrir vikið vera orðinn Skagamann. Hann segir að vinnan sé nokkuð fjölbreytt þrátt fyrir að hann sé að fást við sama búnaðinn dag eftir dag. „Það koma reglulega fram nýjar áskoranir. Það bilar kannski eitthvað sem hefur ekki bilað áður. En á þessum vinnustað skiptir miklu máli að hér starfar góður og samheldinn hópur iðnaðarmanna. Það er gaman að takast á við þau verkefni sem upp koma með þessum hópi.“
Mikilvægt að brúa bilið milli hópa
Samhliða störfum sínum fyrir Norðurál er Daníel bæði trúnaðarmaður FIT á vinnustaðnum og öryggistrúnaðarmaður. Hann kemur því víða við. „Ég hef gaman að því að skipta mér af – á góðan máta og þegar það á rétt á sér,“ segir hann um þessi hlutverk. „Í svona stóru fyrirtæki þarf að ríkja ákveðið aðhald og það er mikilvægt að sinna því vel. Það kemur reglulega upp að maður þarf að láta til sín taka.“
Hann segir að ákveðið jafnvægi þurfi að ríkja á svona vinnustað og mikilvægt að hafa einhvern sem getur miðlað upplýsingum eða talað fyrir hönd starfsmanna í erfiðum málum. „Það eru mörg þrep hérna, þegar kemur að starfsfólki. Maður reynir eins og maður getur að stuðla að góðum samskiptum á milli þessara hópa og brúa bilið. Opin og góð samskipti eru lykillinn að velgengni og góðum starfsanda, sem mér finnst skipta öllu. Hér erum við öll jafningjar en höfum okkar á hlutverkum að gegna. Það er mikilvægt að muna að við erum öll bara mannleg í grunninn og það er mikilvægt að fólk beri virðingu hvert fyrir öðru. Svo er ég bara forvitinn að eðlisfari og er duglegur að spyrja spurninga.“