Byrjaði sem sumarstarfsmaður með pabba
Viðtal við Guðmund Steinþórsson húsasmið

„Ég er búinn að vinna við þetta síðan ég var 15 ára en kláraði sveinsprófið vorið 2023,“ segir Guðmundur Steinþórsson, húsasmiður hjá JÁVERK ehf. á Selfossi. Hann segir aðspurður að þrýstingur frá vinnuveitanda hafi orðið til þess að hann dreif sig í skólann og lauk náminu.
Guðmundur, sem verður fertugur í maí, segir að upplifun hans af náminu hafi verið ágæt. Reynslu sinnar vegna hafi hann hins vegar farið í gegn um raunfærnimat og því ekki þurft að taka alla áfanga. „Ég er búinn að vera hjá sama fyrirtæki núna í 11 ár,“ segir hann og lætur vel af sér hjá fyrirtækinu. „Það er allt í toppmálum hjá JÁVERK.“
Eftir að hafa verið í almennri smíðavinnu hjá fyrirtækinu undanfarinn áratug var Guðmundur gerður að verkstjóra í nóvember. Og það er nóg að gera. „Já, það er bara bjart fram undan og feykinóg að gera. Við erum núna að byggja um 70 íbúðir á Tryggvagötu hér á Selfossi,“ segir Guðmundur, sem býr einmitt í bænum ásamt fjölskyldu sinni; konu og tveimur sonum.
„Mögulega hefur hægt eitthvað á uppbyggingunni þegar kemur að einbýlishúsum og raðhúsum. En það er að koma aukið framboð af lóðum á markaðinn aftur núna,“ bætir hann við.
Spurður hvernig það hafi komið til að hann lagði fyrir sig húsasmíðina svarar Guðmundur því til að pabbi hans sé smiður. Hann hafi byrjað ungur að vinna með honum á sumrin. „Svo byrjaði ég í skóla og hætti í skóla en endaði alfarið í þessu,“ segir hann.
Meistaranámið blundar í Guðmundi, sérstaklega eftir að hann varð verkstjóri. Hann þurfi að finna tíma til að skella sér í það. Aðspurður segir Guðmundur nokkurn mun á þessum hlutverkum, að vera óbreyttur iðnaðarmaður eða verkstjóri. Hann segist koma „öðruvísi þreyttur“ heim. „Það getur verið mjög strembið að vinna úti við húsbyggingar úti í hvaða veðri sem er – sérstaklega á þessum árstíma – en núna er álagið svolítið annars eðlis,“ segir hann.
Viðtalið birtist fyrst í Fréttabréfi FIT