Dagskráin 1. maí – FIT býður í kaffi
Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verður haldinn hátíðlegur um allt land. Hér fyrir neðan má sjá dagskrá dagsins í Reykjavík, Selfossi, Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum og Akranesi. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er „Við sköpum verðmætin“. FIT býður félagsfólki í kaffi á Stórhöfða 31, í tilefnis dagsins. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin en kaffið hefst klukkan 14:00.
FIT hvetur félagsfólk til að taka þátt í hátíðahöldunum.
Reykjavík
13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi.
Fundarstýra er Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona og Margrét Pétursdóttir mun táknmálstúlka. Dagskráin verður jafnframt textatúlkuð á ensku.
Ræðu flytja Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
Mammaðín og Una Torfa munu taka lagið og í lok fundarins verður samsöngur.
Selfoss
Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Sleipnir leiða kröfugöngu kl. 11:00 frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.
- Kynnir – Helga Kolbeinsdóttir frá FOSS
- Ræðumaður – Halla Gunnarsdóttir, formaður VR
- Frá námsmönnum – María Friðmey Jónsdóttir, FSU
- Júlí og Dísa taka lagið
- Leikfélag Hveragerðis með lög úr Ávaxtakörfunni
- Fimleikadeildin sér um andlitsmálun
- Kaffi og veitingar
Reykjanesbær
Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn.
Í tilefni að 50 ára afmæli frá kvennafrídegi munu konur vera áberandi í dagskrá baráttufundarins.
Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll 1. maí kl. 14:00 – 16:00 og eru öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Dagskráin
Húsið opnar kl. 14 og tekur lúðrasveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti fólki.
Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður VSFK setur dagskrá og kynnir.
Ræðumaður dagsins er Saga Kjartansdóttir sérfræðingur í Vinnumarkaðsmálum ASÍ.
Fríða Dís tekur nokkur vel valin lög.
Leikfélag Keflavíkur kemur með innslag og Kvennakór Suðurnesja slær botn í dagskrána.
Vestmannaeyjar
Við fögnum 1. maí í Akóges í ár og minnumst þess að í ár eru 50 ár liðin frá Kvennafrídeginum og mun dagurinn taka mið af því
Húsið opnar kl. 14:00 og verður tekið á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum.
Tónlistarveisla frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja sem sér að vanda um tónlistarflutninginn.
Ávarp, kaffi vöfflur og fleira á boðstólum.
Allir velkomnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.
Akranes
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Akranesi.
Klukkarn 14: fer af stað kröfuganga frá Þjóðbraut 1, trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundar leiðir gönguna.
Hátíðar- og baráttufundur í sal eldri borgara, Dalbraut 4, að göngu lokinni.
Hátíðarræðu flytur Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og kvennakórinn Ymur flytur nokkur lög.
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á kaffi og kökur að hætti kórfélaga.
Kl. 13 og kl. 16 verður bíó fyrir börn í Bíóhöllinni – Hundmann með islensku tali ath. númeruð sæti.
Miða má nálgast á midix.is





