Aukin ávinnsla orlofs frá 1. maí

orlofsmynd

Þann 1. maí 2025 tók gildi aukin ávinnsla orlofs. Lágmarksorlof er nú 10,64%.

Starfsmaður sem unnið hefur í 3 ár hjá sama fyrirtæki eða 5 ár í sömu starfsgrein á rétt á orlofi í 28 virka daga og orlofslaunum sem nema 12,07%.

Starfsmaður sem unnið hefur í 5 ár í sama fyrirtæki á rétt á orlofi í 30 virka daga og orlofslaunum sem nema 13,04%.

Hækkunin tekur sem fyrr gildi 1. maí 2025 þannig að hærri orlofsprósenta er greidd frá þeim tíma.  Aukið orlof kemur þannig til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026.