Yfir 100 námskeið í boði á haustönn

Yfir 100 námskeið eru nú þegar í boði hjá Iðunni á haustönn 2025 og stöðugt fleiri eru að bætast við á vefinn. Frá þessu segir á vef Iðunnar. Eins og venjulega kennir ýmissa grasa þegar námsframboðið er skoðað. Á vef Iðunnar eru þeir sem ekki finna námskeið við hæfi hvattir til að senda fyrirspurn á namskeid@idan.is.

„Við hvetjum þátttakendur á námskeiðum til að nýta sér aðgang sinn að mínum síðum á vef Iðunnar. Á mínum síðum er einfalt að fá yfirlit yfir námsferil, dagskrá námskeiða og vefnámskeið sem viðkomandi er skráður á,” segir á vefnum.

Auka námskeiða í þessum greinum má sækja ýmis vefnámskeið sem opin eru öllum stundum. Þar má meðal annars nefna námskeið um vinnuvernd, grunnámskeið vinnuvéla, námskeið um brúkrana og námskeið í múrdælum, svo fátt eitt sé nefnt.

Félagsfólk í FIT fær, eins og aðrir aðilar að Iðunni, námskeiðin á mjög niðursettu verði.