Ferð eldri félaga 2025
Föstudaginn 12. september verður farið í árlegt ferðalag eldri félaga Félags iðn- og tæknigreina.
Fyrir þá sem eru að fá boð í fyrsta sinn skal upplýst að ferðirnar eru félögum að kostnaðarlausu en allir þeir sem náð hafa 67 ára aldri eða verða 67 ára á árinu fá boð. Boðið gildir aðeins fyrir skráða félagsmenn en ekki maka.
Lagt verður af stað frá bílastæði Árbæjarsafns í Reykjavík stundvíslega kl. 09:00, undir stjórn fararstjóra. Lagt verður af stað frá Akranesi og Selfossi klukkan 08:00. Komið verður við í Reykjavík og Reykjanesbæ.
Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og farið verður í heimsókn á athyglisverðan stað. Við gerum svo ráð fyrir að vera aftur á Árbæjarsafni um kl. 18:00.
Hámarksfjöldi félaga í ferðina miðast við 100 manns í tvær rútur. Því er nauðsynlegt að skrá sig snemma. Nauðsynlegt er að þeir sem ætla með, skrái sig á netinu í rafrænni skráningu í síðasta lagi þriðjudaginn 9. september. Upplýsingar í síma 535-6000.
Athugið að gefa þarf upp nafn, kennitölu, síma, netfang, heimlisfang, starfsheiti og brottfararstað.
Nánari upplýsingar má fá í síma 535-6000.




