Sex keppendur úr röðum FIT á leið á Euroskills
Ísland á þrettán keppendur alls að þessu sinni
Þrettán fulltrúar Íslands eru, þegar þetta er skrifað, á leið til Herning í Danmörku til að keppa á Euroskills, Evrópumóti iðn- og verkgreina sem fram fer dagana 9.-13. september. Af þessum 13 manna hópi keppenda eru sex félagar í FIT; þrjár konur og þrír karlar á aldrinum 18-24 ára. Hópurinn hefur æft af kappi síðustu vikur og mánuði og meðal annars fengið um 40 klukkustundir af ráðgjöf og fræðslu hjá sálfræðingi sem er sérhæfður í að styðja afreksíþróttafólk.
Flestir keppendurnir og aðstandendur þeirra komu saman á Stórhöfða 31 á laugardaginn og áttu þar góða stund, áður en haldið var til Danmerkur. FIT nýtti tækifærið og tók fjóra keppendur tali.
„Þetta hefur verið smá æsingur“
„Þetta er í fyrsta sinn sem bifvélavirki fer út á Euroskills og ég veit í raun ekkert hvernig verkefnin verða,“ segir bifvélavirkinn Adam Stefánsson í samtali við FIT. Adam er einn þrettán íslenskra keppenda sem er á leið til Herning í Danmörku til að taka þátt í Euroskills, Evrópumóti iðn- og verkgreina. Keppnin fer fram dagana 9.-13. september.
Adam, sem lærði í Borgarholtsskóla og lauk námi 2021, var valinn til að fara á Euroskills eftir að hafa þreytt próf hjá Iðunni fræðslusetri, ásamt ríflega 10 öðrum bifvélavirkjum. Þetta var í febrúar og því hefur Adam haft í nógu að snúast undanfarna mánuði. „Þetta hefur verið smá æsingur,“ viðurkennir hann og bætir við að undirbúningurinn hafi meðal annars falist í að sitja ótal námskeið og afla sér réttinda í hinum og þessum þáttum bifvélavirkjunarinnar. „Ég veit ekkert hvaða verkefni bíða mín og geng svolítið blint inn í þetta. Ég er mjög spenntur fyrir þessu en á sama tíma fær maður fiðring í magann þegar maður hugsar um þessar aðstæður. En það er nú bara eðlilegt.“
Adam, sem vinnur hjá Bílaverkstæði Högna í Hafnarfirði, segist hafa ákveðið fimm ára að leggja fyrir sig húsasmíði en fór að hugsa málið betur daginn sem kom að því að sækja um skóla. „Ég fattaði að ég horfði á bílavídeó allan daginn og var 14 ára búinn að kaupa mér bíl til að gera upp. Ég ákvað að prófa bifvélavirkjun og sé ekki eftir því.“
„Býst við að þetta verði mjög stórt“
Hildur Magnúsdóttir Eirúnardóttir keppir fyrir Íslands hönd í málaraiðn. Hún bar sigur úr býtum á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem fram fór í Laugardalshöll 2023 og var í kjölfarið boðið að fara á Euroskills. Hún segir að sú keppni hafi verið smá í sniðum í samanburði við það sem býður henni í Herning. „Ég býst við að þetta verði mjög stórt og að við fáum krefjandi verkefni,“ segir hún. Hildur hefur æft af kappi í Tækniskólanum í allt sumar. Hún hefur þar glímt við eldri verkefni sem keppendur á Euroskills og Worldskills hafa glímt við. „Ég fæ ekki að sjá hvernig verkefnið mitt verður fyrr en ég kem út,“ segir hún.
Aðspurð segist Hildur, sem er 19 ára, bæði spennt og stressuð fyrir keppnina. Hún segir að andlegi undirbúningurinn sem hópurinn hefur fengið hafi skipt sköpum. „Það hefur hjálpað mikið að fá þessa sálfræðitíma, ekki síst fyrir okkur sem hóp. Þetta hefur tengt okkur vel saman.“
Spurð hvernig málaraiðnin hafi orðið fyrir valinu svarar Hildur því til að bóknám hafi ekki heillað. Þess vegna hafi Tækniskólinn orðið fyrir valinu, að loknum grunnskóla. Hún hafi viljað vinna með höndunum.
Undanfarið hefur Hildur verið að vinna að leikmyndum fyrir leikhús og bíó, ásamt því að æfa sig fyrir Euroskills og vinna sjálfstætt. Hún segist vilja halda áfram á þeirri braut, að keppninni lokinni.
Býr að fimm ára reynslu úr faginu
Píparinn Ezekiel Jakob Hanssen sigraði, eins og Hildur, Íslandsmót iðngreina árið 2023. Hann öðlaðist þannig keppnisrétt á Euroskills. Ezekiel, sem lærði í Tækniskólanum, ætlaði upphaflega í smíðanám en fannst námið í pípulögnum meira heillandi. „Stærsti hlutinn af náminu felst í að vera á námssamningi hjá meistara. Það hentaði mér mjög vel,“ segir Ezekiel sem er í fimm ár búinn að vinna hjá Lagnaþjónustu Suðurnesja. „Ég var mjög heppinn að komast þar á námssamning og hef verið þar síðan.“
Ezekiel, sem er 23 ára, segir að viðfangsefnið á Euroskills verði frábrugðið því sem hann fæst við dagslega í vinnunni. Ýmis efni séu til að mynda notuð úti sem ekki tíðkist hér. Vinnubrögðin séu auk þess frábrugðin. Hann gerir hins vegar ráð fyrir að hraðinn hans og reynsla, eftir fimm ára feril í pípulögnum, muni koma að góðum nótum þegar á hólminn verður komið.
Ezekiel hefur nýtt sumarið vel til æfinga en segir að keppinautarnir séu margir hverjir í fullri vinnu og á launum við undirbúninginn. „Ég er búinn að æfa mig af og til í sumar og síðastliðinn mánuð hef ég verið að æfa þrisvar í viku eftir vinnu, bæði á verkstæðinu í vinnunni og með Gunnari (expert) í Tækniskólanum í Hafnarfirði.
„Ég vildi alveg að ég hefði getað æft eins mikið og þeir sem ég er að fara að keppa við, en ég er bara mjög spenntur fyrir þessu. Ég held ég sé með aðeins öðruvísi færni en hinir. Ég mæti með fimm ára reynslu og er fullur sjálfstrausts,“ segir hann.
Sigfús Björgvin Hilmarsson vann Íslandsmótið í málmsuðu á Íslandsmóti iðn- og verkgreina í mars og er á leið til Herning fyrir Íslands hönd.
Sigfús, sem er á þriðja ári í vinnu hjá Bergstáli í Reykjanesbæ, segir að undirbúningurinn hefði getað verið meiri en hann hafi þó æft af kappi síðustu daga og vikur. Og þær æfingar hafa gengið vel.
Sigfús, sem reiknar með að ljúka námi um áramót og útskrifast þá sem stálsmiður, hefur nýtt góða aðstöðu í Tækniskólanum til æfinga. „Áður en ég fór niður í Tækniskóla að æfa mig þá var ég orðinn lúmskt stressaður,“ viðurkennir hann. „En núna líður mér betur og er minna stressaður fyrir þessu. Þetta verður bara gaman.“ Sigfús er ánægður með hópinn. „Þetta verður mikið ævintýri. Þetta er frábær hópur sem er að fara út.“
Hann bendir á að teikningar af verkefninu liggi fyrir en að keppendur geti búist við 30% breytingu, þegar á hólminn verður komið. Dr. Erlendur Egilsson hefur sinnt andlegum undirbúningi fyrir hópinn. Sigfús segist hafa fundið að skilaboðin frá Erlendi hafi hjálpað honum mikið. „Hann var að segja hluti sem ég svo sem vissi alveg en var ekki búinn að meðtaka eða átta mig á. Það er margt sem hann hefur sagt sem hefur nýst okkur vel.“
Stærsta mót sinnar tegundar í Evrópu
Fjórtán expertar fylgja keppendum til Herning, ásamt fararstjóra, sálfræðingi og fleiri. Expertarnir flugu út í gær en keppendur eru á leið út í dag. Euroskills er stærsta mót sinnar tegundar í Evrópu og fá þar um 600 þátttakendur tækifæri til að láta ljós sitt skína. Keppnisgreinar eru 38. Íslendingar eiga fulltrúa í málmsuðu, pípulögnum, rafeindavirkjun, rafvirkjun, iðnaðarstýringum, trésmíði, matreiðslu, framreiðslu, grafískri miðlun, bakstri, hársnyrtiiðn, málun og bifvélavirkjun. Búist er við allt að 100 þúsund gestum í Herning.
Keppendur fyrir Íslands hönd á Euroskills verða:
-
Málmsuða: Sigfús Björgvin Hilmarsson (FIT)
-
Pípulagnir: Ezekiel Jakob Hanssen (FIT)
-
Rafeindavirkjun: Einar Örn Ásgeirsson
-
Rafvirkjun: Daniel Francisco Ferreira
-
Iðnaðarstýringar: Gunnar Guðmundsson
-
Húsasmíði: Freyja Lubina Friðriksdóttir (FIT)
-
Matreiðsla: Andrés Björgvinsson
-
Framreiðsla: Daníel Árni Sverrisson
-
Grafísk miðlun: Jakob Bjarni Ingason
-
Bakari: Guðrún Erla Guðjónsdóttir
-
Hársnyrtiiðn: Bryndís Sigurjónsdóttir (FIT)
-
Málaraiðn: Hildur Magnúsdóttir (FIT)
-
Bifvélavirkjun: Adam Stefánsson (FIT)
FIT óskar íslensku keppendunum góðs gengis í Danmörku og mun fylgjast náið með framgangi keppninnar.





