„Hér er vagga iðnaðarins í Evrópu“
Keppni á Euroskills stendur sem hæst
„Hér eru troðfullar hallir og gaman að sjá hvað okkar fólk mætir vel undirbúið til leiks,“ segir Hilmar Harðarson, formaður FIT, sem fylgst hefur með Euroskills sem fram fer þessa vikuna í Herning í Danmörku. Sex félagar úr FIT eru í hópi keppenda á mótinu en Ísland sendir samtals keppendur í 13 iðngreinum á Euroskills. Þeir hafa aldrei verið fleiri.
Óhætt er að segja að keppni sem þessi sé stór í sniðum. Keppnishallirnar í Herning eru hvorki fleiri né færri en 12 talsins en innangengt er á milli þeirra allra. Aðstaða er öll eins og hún getur best orðið. Auk keppnisgreina kynna fjölmörg fyrirtæki vörur sínar og starfsemi hér í Herning. „Þetta er eins og að koma á stóran íþróttaviðburð,“ segir formaðurinn. Búist er við um 100 þúsund gestum á keppnina.
Hilmar segir að íslenskir fjölmiðlar og ráðamenn mættu sýna Euroskills og þátttöku Íslands meiri áhuga. Mikið sé undir. Auk keppendanna þrettán eru fjórtán expertar sem fylgja þeim og sinna jafnframt dómgæslu á mótinu. Samtals telur íslenski hópurinn 41 mann.
„Hér á þessum leikum er vagga iðnaðarins í Evrópu. Hér eru iðnaðarmenn framtíðarinnar að sýna sínar bestu hliðar. Við vitum að góður iðnaðarmaður er besta neytendaverndin sem þú getur fengið,“ segir Hilmar sem sem ferðaðist til Danmerkur, ásamt Karli Óttari Péturssyni, lögmanni FIT, til að fylgjast með íslensku keppendunum.
Hilmar segir sérstakt gleðiefni að verða að fylgjast með íslenskum keppendum í greinum sem við höfum ekki keppt í áður. Bifvélavirkjun og málun eru þar á meðal. „Þetta er rosalega flott keppni og sé hvað mikil vinna liggur að baki hjá okkar fólki. Það verður spennandi og gaman að sjá hvernig þetta kemur allt út,“ segir Hilmar en Euroskills lýkur um helgina.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá því í dag.
- Ezekiel Jakob Hanssen, keppandi í pípulögnum.
- Sigfús Björgvin Hilmarsson keppir í málmsuðu.
- Adam Stefánsson keppir í bifvélavirkjun.
- Hildur Magnúsdóttir keppir í málaraiðn.
- Frá keppnissvæði í hársnyrtiiðn.
- Fjölmenni fylgist með Hildi keppa í málaraiðn.
- Keppni í húsarafmagni.
- Hrannar Freyr Gílason og Freyja Lubina Friðriksdóttir, keppandi í húsasmíði.
- Guðmundur Ragnarsson, expert í málmsuðu.
- Hrannar Freyr Gíslason, expert í húsasmíði
- Fulltúir Tækniskólans voru á meðal gesta
- Íslensku keppendurnir skömmu fyrir keppni.
















