244 nýsveinar fengu sveinsbréfin

Ein fjölmennasta afhending sveinsbréfa sem IÐAN hefur staðið fyrir frá upphafi fór fram á Hótel Nordica í gær, þann 16. september 2025. Alls fengu 244 sveinsbréf sín afhent við hátíðleag athöfn. Um 600 manns voru á staðnum. Fjölmennustu hóparnir voru húsasmiðir og píparar en sjá má fjölda eftir iðgreinum hér fyrir neðan.

Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR, flutti ávarp og Saga Garðarsdóttir fór með gamanmál. Boðið var upp á veglegar veitingar að venju.

Fulltrúar Félags iðn- og tæknigreina voru að sjálfsögðu á staðnum, bæði til að afhenda sveinsbréf og festa viðburðinn á filmu.

  • Matreiðsla: 12
  • Framreiðsla: 10
  • Bakaraiðn: 9
  • Kjötiðn: 4
  • Bílamálun: 11
  • Bifreiðasmíði: 8
  • Húsasmíði: 105
  • Húsgagnasmíði: 7
  • Pípulagnir: 55
  • Málaraiðn: 6
  • Múraraiðn: 11
  • Veggfóðrun og dúkalögn: 6

FIT óskar nýsveinum til hamingju með áfangann!